Skólasetning og upphaf skólastarfsins

Skólasetning Tónlistarskóla Seltjarnarness fer fram í Seltjarnarneskirkju þriðjud. 31. ágúst kl.17:00. Kennsla hefst miðvikud. 1. sept. Athugið að kennsla í fræðigreinum, blokkflautuhópum og hljómsveitaræfingar hefjast viku síðar, miðvikudaginn 8. sept. 

Uppgjör skólagjalda og upphaf skólaárs

notaUppgjör skólagjalda vegna skólaársins 2010-2011 fer fram í Tónlistarskólanum dagana 25., 26. og 27. ágúst frá kl 11:00-15:00. Athugið að einnig er hægt að ganga frá greiðslu skólagjalda í síma 5959 235. -Skólasetning fer fram þriðjudaginn 31.

Ungsveit Sinfóníunnar

rumonUngsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands efnir til hljómsveitarnámskeiðs dagana 22. september - 2. október 2010. Námskeiðið er einkum ætlað nemendum á mið- og framhaldsstigi og verða prufuspil haldin fyrir öll hljóðfæri dagana 10.-14. maí.

Áfangapróf 23. apríl - engin kennsla

Við viljum minna nemendur á að vegna áfangaprófa sem fara fram í tónlistarskólanum þann 23. apríl verðu engin kennsla í skólanum þann dag.

Gleðilegt sumar!

Vortónleikar

fiflVortónleikar Tónlistarskólans fara fram í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 24. apríl. Eins og síðustu ár dugar ekkert minna en að hafa þrenna tónleika og hefjast þeir kl. 13:00, 14:30 og 16:00. Lokaæfingar fyrir tónleikana fara fram í kirkjunni föstudaginn 23. apríl.

Valgerður Ákadóttir - minning

valaÞann 20. mars síðastliðinn lést elskuleg samstarfskona okkar, Valgerður Ákadóttir píanókennari, eftir skamma sjúkdómslegu. Brotthvarf Völu var skyndilegt og óvænt og hennar er sárt saknað í tónlistarskólanum.

Innritun hafin

tolva2Kæru nemendur og foreldrar/forráðamenn. Við viljum vekja athygli ykkar á því að innritun fyrir næsta skólaár er hafin á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar (Rafrænt Seltjarnarnes). Innritunin stendur til 15. maí en við hvetjum alla til að sækja um sem fyrst.

Lúðrasveitatónleikar á laugardag

ludrarVortónleikar lúðrasveita tónlistarskóla Seltjarnarness verða haldnir í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 10 apríl og hefjast þeir kl. 14:00. Fram koma allar lúðrasveitir skólans, A-, B- og C-sveit og verður dagskráin fjölbreytt og skemmtileg að vanda!

Frábær árangur í Nótunni!

Léttsveit tónlistarskólans tók þátt í lokatónleikum Nótunnar, uppskeruhátíð tónlistarskólanna, laugardaginn 27. mars síðastliðinn. Atriðið þeirra þótti svo framúrskarandi að það var valið besta samspilsatriði á miðstigi! Við óskum krökkunum og stjórnanda þeirra Kára H. Einarssyni innilega til hamingju með árangurinn.

Nótan - Uppskeruhátíð tónlistarskólanna

notaUppskeruhátíð tónlistarskólanna, Nótunni, lýkur á morgun með hátíðartónleikum í Langholtskirkju. Nemendur í grunn- og miðnámi spila á tónleikum sem hefjast kl. 11:00. En tónleikar framhaldsnema hefjast kl. 13:00.