Jólatónleikar

ererJólatónleikar Tónlistarskóla Seltjarnarness verða haldnir laugardaginn 5. desember. Tónleikarnir verða þrennir eins og undanfarin ár kl. 13:00, 14:30 og 16:00 og eins og hefð er fyrir munu þeir fara fram í Seltjarnarneskirkju. Það er alltaf hátíðleg og skemmtileg stund að koma í kirkjuna og hlusta á krakkana spreyta sig og viljum við því hvetja alla sem vettlingi geta valdið til að mæta og hlusta. Þeir nemendur sem að ekki spila sjálfir að þessu sinni eru sérstaklega hvattir til að koma og hlusta á samnemendur sína.