Jólalög fyrir gítar
Eins og áður viljum við gjarnan benda nemendum á nýjar íslenskar nótnabækur. Nú nýverið kom út bók með jólalögum fyrir gítar. Þorvaldur Már Guðmundsson gítarleikari og gítarkennari hefur valið lögin, útsett þau og búið til prentunar. Bókin er fagurlega myndskreytt af Eiríki Árna Sigtryggssyni eins og sjá má á meðfylgjandi síðu og mun verða til sölu í Tónastöðinni. Hana má einnig panta hjá Þorvaldi sem gefur allar nánari upplýsingar valdimg@ismennt.is

