Tilkynning frá bæjaryfirvöldum
Til íbúa Seltjarnarnesbæjar. -Í bæjarstjórn Seltjarnarness, þann 22. desember s.l., voru samþykktar samhljóða breytingar á gjaldskrám fyrir þjónustu Seltjarnarnesbæjar er taka gildi frá og með 1. janúar 2010. Breytingarnar munu hafa áhrif á upphæð boðgreiðsla fyrir tónlistarnám. Þeir sem ekki eru í boðgreiðslum munu fá sendan greiðsluseðil vegna mismunar. Íbúum er bent á að kynna sér breytingarnar á heimasíðu bæjarins á slóðinni www.seltjarnarnes.is. Upplýsingar má einnig fá í þjónustuveri í síma 5959100.
