Fallið frá hækkun skólagjalda

Til íbúa Seltjarnarnesbæjar

Í bæjarstjórn Seltjarnarness, þann 22. desember síðastliðinn, voru samþykktar breytingar á gjaldskrám vegna tónlistarnáms í Tónlistarskólanum og  áttu þær að taka gildi frá og með 1. janúar 2010. Fallið hefur verið frá þessari ákvörðun og mun skólagjald haldast óbreytt út  skólaárið 2009 - 2010.

Athugið að þeir sem hefja tónlistarnám frá 1. janúar 2010 munu þó greiða hærra skólagjald.

Skólastjóri