Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskólanna - 15 ára einleikari!

Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna heldur tónleika í Langholtskirkju laugardaginn 30. janúar kl. 16:00. Hljómsveitina skipa tæplega 100 nemendur úr tónlistarskólum á höfuðborgarsvæðinu.
Að þessu sinni eru engir nemendur úr Tónlistarskóla Seltjarnarness meðal þátttakenda en samt er full ástæða til að hvetja nemendur og aðstandendur þeirra til að skella sér á tónleika og hlýða á hvað félagar þeirra í öðrum tónlistarskólum eru að fást við. Sérstök ástæða er til að benda á að einleikari á þessum tónleikum er hinn 15 ára gamli trompetleikari, Baldvin Oddsson og mun hann leika trompetkonset í Es-dúr eftir Joseph Haydn. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Baldvin þegar sýnt að þar er á ferð hæfileikamikill ungur maður sem hefur náð frábærum árangri með dugnaði og elju.
