Skyndihjálparnámskeið

logoEngin kennsla var í Tónlistarskóla Seltjarnarness á öskudag. Dagurinn var nýttur til símenntunar kennara. Að þessu sinni var boðið upp á námskeið í skyndihjálp. Áherslur í skyndihjálp hafa breyst mjög síðustu ár og því gripu kennarar þetta tækifæri fegins hendi til að endurnýja kunnáttuna. Flestir þekkja dæmi þess að lífum hafi verið bjargað með réttum viðbrögðum og mikilvægt að sem flestir kunni réttu handtökin.