Jólalög fyrir gítar

joliEins og áður viljum við gjarnan benda nemendum á nýjar íslenskar nótnabækur. Nú nýverið kom út bók með jólalögum fyrir gítar. Þorvaldur Már Guðmundsson gítarleikari og gítarkennari hefur valið lögin, útsett þau og búið til prentunar.

Jólatónleikar

ererJólatónleikar Tónlistarskóla Seltjarnarness verða haldnir laugardaginn 5. desember. Tónleikarnir verða þrennir eins og undanfarin ár kl. 13:00, 14:30 og 16:00 og eins og hefð er fyrir munu þeir fara fram í Seltjarnarneskirkju.

Nýtt fréttabréf

Fréttabréf haustannar er komið út. Smellið hér til að lesa eða farið í dálkinn Fréttabréf. Þess má geta að fréttabréf eru einnig send til nemenda eða forráðamanna með tölvupósti.

Lúðrasveitatónleikar

Hausttónleikar Skólalúðrasveitar Seltjarnarness verða haldnir í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 21. nóvember kl. 14:00. Tónleikarnir verða að venju hin besta skemmtan og við hvetjum því alla til að mæta og að láta sem flesta vita af þessum viðburði! Miðaverð er kr. 1.500- en frítt er fyrir 16 ára og yngri.

Íslensk tónlist í öndvegi

Þann 11. nóvember næstkomandi verða haldnir þematónleikar í tónlistarskólanum. Ákveðið hefur verið að þema tónleikanna að þessu sinni verði íslensk tónlist. Íslensk tónlist er að sjálfsögðu af margvíslegum toga og má því búast við fjölbreyttri en eflaust nokkuð þjóðlegri dagskrá!

Lúðrasveitin fer til Vestfjarða

ludo

Tónlistarskóli Seltjarnarness á vinaskóla á Vestfjörðum en það er Tónlistarskóli Vesturbyggðar. Um næstkomandi helgi verða tengsl skólanna efld því að þá munu um 30 krakkar af Seltjarnarnesi fara á vestur á Patreksfjörð. Að þessu sinni eru það krakkar úr lúðrasveitinni sem að leggja land undir fót og er ferðin líka æfingaferð. Æfingaferðin er þó með öðru sniði en venjulega því að blásarar í Vesturbyggð munu að líkindum bætast í hópinn og á sunnudaginn verður slegið upp tónleikum. -Talað er um heimsóknina í fréttum á heimasíðu Vesturbyggðar og á vef Tálknafjarðar.

Vetrarfrí

Vetrarfrí verður í Tónlistarskóla Seltjarnarness dagana 26. - 28. október. Skrifstofa skólans verður einnig lokuð þessa daga. Við bendum nemendum á að tilvalið er að nota þessa daga til að æfa vel! :-)

Landsmóti frestað vegna veðurs

Landsmóti SÍSL sem vera átti í Vestmanneyjum dagana 9.-11. október hefur verið aflýst vegna veðurs. Seinni ferð Herjólfs til Eyja í dag, fimmtudag var felld niður og útlit er fyrir enn verra veður á morgun. Mótshöldurum þótti nauðugur einn sá kostur að fresta mótinu.

Landsmót skólalúðrasveita 9. - 11. október

Rúmlega 20 krakkar úr  lúðrasveitum tónlistarskólans halda á föstudag til Vestmannaeyja til að taka þátt í landsmóti skólalúðrasveita sem þar fer fram dagana 9.-11. október.

Nýjar íslenskar kennslubækur og lagahefti

Það er alltaf ánægjulegt þegar ráðist er í útgáfu íslenskra kennslubóka eða lagasafna í hljóðfæraleik og okkur er það ljúft og skylt að benda nemendum sem og kennurum á þessar bækur með þeirri von að þær muni nýtast vel við kennslu eða sem aukaefni næstu árin.