Tónfræðihópar og haustþing kennara

Nú eru tónfræðihópar komnir inn á síðuna þó að alltaf sé hægt að gera ráð fyrir að einhverjar breytingar geti enn orðið. Smellið hér eða veljið tónfræðihópa úr fellilista í upplýsingum. -Föstudaginn 11. september verður haldið svæðisþing tónlistarkennara.

Tónfræði og hljómsveitir

Kæru nemendur og foreldrar/forráðamenn. Nú ætti hljóðfærakennsla að vera komin í fullan gang og vetrarstarfið farið að taka á sig mynd. Tónfræðitímar og hljómsveitaæfingar hefjast frá og með mánudeginum 7. sept. Nemendur geta fengið upplýsingar um tónfræðitímana sína hjá hljóðfærakennurum eða á skrifstofu skólans.

Haust 2009

Nú er nýtt skólaár að hefjast í Tónlistarskóla Seltjarnarness. Það verður gaman að hitta gamla nemendur jafnt sem nýja og láta tónlistina flæða um bæinn! Skóladagatal ársins verður birt hér á heimasíðu skólans fljótlega en það sem allir þurfa að vita núna er eftirfarandi: Uppgjör skólagjalda vegna skólaársins 2009 - 2010 fer fram 19. - 21.

Skólaslit

Kæru nemendur og foreldrar/forráðamenn. Þá er liðið að lokum þessa skólaárs. Skólaslit Tónlistarskóla Seltjarnarness verða í Seltjarnarneskirkju mánud. 25. maí kl. 17:00. Að venju verður stiklað á stóru og helstu atburða skólaársins minnst auk þess sem flutt verða tónlistaratriði. Að lokum hitta nemendur kennara sína og fá afhenta vitnisburði vetrarins.

Hljómsveitarnámskeið hjá Sinfóníunni

rumongamba

Kæri tónlistarnemi,
 
Okkur er það sérstök ánægja að kynna hljómsveitarnámskeið á vegum Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir lengra komna tónlistarnema. Námskeiðið verður haldið 12. - 26. september og lýkur með tónleikum í Háskólabíói laugardaginn 26. september. Stjórnandi á námskeiðinu er Rumon Gamba aðalhljómsveitarstjóri SÍ en jafnframt munu  leiðarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands stýra raddæfingum.

Vortónleikar

kirkja

Vortónleikar Tónlistarskóla Seltjarnarness verða haldnir þann 9. maí næstkomandi. Að venju fara þeir fram í Seltjarnarneskirkju og verða þrennir eins og undanfarin ár. Þeir fyrstu kl. 13:00, næstu kl. 14:30 og þeir síðustu kl. 16:00. Við hvetjum alla til að mæta og njóta skemmtilegrar tónlistar.

Umsóknarfrestur framlengdur

Mjög margar umsóknir um skólavist bárust í gær, 20. apríl, á síðasta skráningardegi. Því hefur verið ákveðið að framlengja umsóknarfrest um eina viku eða til 27. apríl.

Nýtt fréttabréf er komið út

Við viljum benda á að fréttabréf vorsins 2009 er komið út. Smellið hér eða farið í dálkinn Fréttabréf

Viðgerðir á strengjahljóðfærum

vidgerd

Stefan Hansen fiðlusmiður og viðgerðarmaður sækir Ísland heim í þessari (30 mars). Stefan, sem er af þýsku bergi brotinn en hefur um skeið búið í Svíþjóð, býður fram þjónustu sína, viðgerðir á strengjahljóðfærum, meðan á dvöl hans stendur. Hann hefur aðsetur í Reykjavík og hægt er að koma fyrirspurnum og pöntunum á framfæri í síma: 618-4746.

Gleðilega páska!

ungar

Við minnum á að síðasti kennsludagur fyrir páska er föstudagur 3. apríl. Kennsla að loknu páskaleyfi hefst 14. apríl.