Tónleikar lengrakominna nemenda
Næstkomandi miðvikudag, 1. apríl, verða tónleikar lengrakominna nemenda haldnir í Seltjarnarneskirkju. Það er fyrir löngu orðin föst hefð í tónlistarskólanum að halda sérstaka tónleika fyrir þá nemendur skólans sem lengst eru komnir í námi sínu. Það veitir þeim tækifæri til að sýna sig og sjá aðra sem eru á svipuðu stigi í náminu.
Innritun er hafin fyrir næsta skólaár!
Kæru nemendur og foreldrar/forráðamenn. Við viljum vekja athygli ykkar á því að nú er skráning umsókna fyrir næsta skólaár hafin á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar. Umsóknarfrestur er til 20. apríl, en ekki verður tekið við umsóknum eftir þann tíma. Við bendum ykkur því vinsamlegast á að sækja um tímanlega.
Frábær fengur
Hinn 21. febrúar rak happafeng á fjörur nemenda og kennara Tónlistarskóla Seltjarnarness því að Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari kom í heimsókn og hélt þar opna kennslustund (masterclass).

Sönglögin okkar (100 íslensk sönglög fyrir blásturshljóðfæri)
Skömmu fyrir jól kom út ný íslensk bók fyrir blásturshljóðfæri. Í henni er að að finna safn hvorki meira né minna en 100 þekktra sönglaga. Fullt af lögum við allra hæfi og frábær viðbót með hefðbundnu kennsluefni.
Gleðilegt ár!
Starfsfólk Tónlistarskóla Seltjarnarness sendir nemendum og forráðamönnum þeirra sínar bestu kveðjur.
Gleðilegt ár!

Tómstundastyrkir
Tónlistarskóla Seltjarnarness barst nú nýverið svohljóðandi bréf frá formanni Íþrótta- og tómstundaráðs:
Nýtt fréttabréf er komið út
Fréttabréf haustsins 2008 hefur nú verið sent með tölvupósti til allra nemenda eða forráðamanna. Þar er að finna allar helstu upplýsingar um skólastarfið til jóla þ.m.t. allir tónleikatímar og fleira. Fréttabréfið er einnig að finna hér á síðunni.
Myndir frá lúðrasveitarstarfi
Hér geturðu skoðað fullt af myndum frá lúðrasveitarstarfinu í tónlistarskólanum, m.a. af fyrstu æfingu nýjustu sveitarinnar og einnig eldri myndir frá ýmsum tímum. Góða skemmtun!!

Ný lúðrasveit!
Til skamms tíma voru lúðrasveitir tónlistarskólans aðeins tvær. En nú er aftur búið að mynda þriðju lúðrasveitina við skólann. Yngstu blásturshljóðfæraleikararnir sem að hófu nám sitt fyrir einungis tveimur mánuðum hafa verið boðaðir á æfingar. Æfingar munu fara fram á fimmtudögum kl. 16:00-16:50 í nýjum æfingasal tónlistarskólans.
